Skúli Magnússon héraðsdómari sagði í hádegisfréttum RÚV að hann skildi ekki hvers vegna Seltjarnarnesbær bannaði fólki nú að fara í Sjósund í Seltjörn. Bærinn sagði bannið vera sett til að fuglavarp yrði ekki truflað á svæðinu.
„Í raun og veru furðum við okkur á því að málið sé ekki einfaldlega skoðað og það sé kannað hvaða áhrif við höfum. Það er hægt að gera það með einföldum hætti,“ sagði Skúli og benti á að sjósund hafi verið stundað á svæðinu í fjölda ára án þess að nokkur truflun hafi orðið á fuglavarpi.
Hann og fleiri sjósundmenn, sem hafa nýtt sér Seltjörnina, safna nú undirskriftum til að gagnrýna bannið. Þá hefur verið óskað eftir upplýsingum frá bænum um á hvaða rökum bannið sé byggt. Engin svör hafa þó borist enn.
„Ég get alveg játað það að mér finnst óþægilegt að vera settur í þá stöðu að þurfa að standa í ágreiningi út af svona máli,“ segir Skúli við RÚV en hann er eins og fyrr segir héraðsdómari. „Ég legg áherslu á það að öll mín afskipti af þessu máli eru á grundvelli þess að ég er einfaldlega einn af þeim sem hafa verið að stunda þarna sjóíþróttir og ég reyni að halda mínu starfi algerlega fyrir utan þetta,“ segir hann.