Hera björk og benni erlings í helginni

Leikarinn Benedikt Erlingsson og söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir eru gestir leikstjórans Karls Ágústs Úlfssonar í skemmtiþættinum Helginni á Hringbraut í kvöld.

Það er heldur betur glatt á hjalla í þættinum, enda miklir listamenn á ferð sem luma á mörgum skemmtilegum sögum af stóra sviðinu, heima og erlendis

Áhorfendur geta svo auðvitað farið að hlakka til inngangsorða Karls Ágústs í þættinum, en þar er hann vanur að draga þjóð sína sundur og saman í háði sem á stundum svíður undan.

Nafni hans Olgeirsson leikur að vanda undir í þættinum.

Helgin er frumsýnd klukkan 20:00 í kvöld og endursýnd strax klukkan 22:00 og einnig sýnd á morgun, sunnudag klukkan 20:00.