Hér var illviljinn einn að vopni!

\"Það var stofnað til þessa máls með illviljan að vopni,“ segir Þorsetinn Már Baldvinssyni, forstjóri Samherja um meint brot Samherja á gjaldeyrislögum. Sérstakur saksóknari felldi málið niður í gær. Þorsteinn Már segir seðlabankastjóra hafa stofnað til málsins með fölsunum.
 

Þetta er haft eftir Þorsteini í fréttum RÚV í gærkvöld þar sem segir frá því að sérstakur saksóknari hafi í dag fellt niður sakamál vegna meintra brota Samherja á gjaldeyrislögum. Þrjú og hálft ár er frá því húsleit var gerð á skrifstofum Samherja á Akureyri og í Reykjavík. Lögreglurannsókn lauk í vor, en saksóknari felldi sakamálið niður í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu féll hluti af málinu um sjálft sig - því gjaldeyrisreglur Seðlabankans, héldu ekki. 

\"Ég skila þakklæti til stafsfólksfólks Samherja sem hefur staðið á bakvið mig í þessi ár sem þetta mál hefur staðið yfir og í öðru lagi þá gleðst ég yfir því að starfsmenn mínir sem hafa sumir hverjir verið teknir nánast í gíslingu í nokkur ár séu þá lausir úr henni,“ sagði Þorsteinn Már í fréttum RÚV.

Hann sagði í samtali við fréttastofuna að hann ætlaði að gera nánar grein fyrir þeim ásökunum sem hann hefur á hendur Seðlabankann og seðlabankastjóra síðar: \"Ég mun gera grein fyrir því seinna, ég ætla að leyfa mínu fólki að gleðjast yfir þessu og njóta helgarinnar en ég mun að sjálfsögðu síðan gera grein fyrir þessum málum,“ sagði Þorsteinn Már við RÚV.