Meginreglan í Seðlabönkum í nágrannalöndum Íslands er að hafa einn aðalbankastjóra. Víðast hvar er þó fjölskipuð stjórn bankanna þar sem aðstoðarbankastjórar koma að ákvarðanatöku í mikilvægum efnahagsmálum. Eftir því sem hringbraut.is kemst næst hefur ekkert annað land en Ísland verið með það vinnulag að hafa þrjá seðlabankastjóra, en ákaft er nú rætt um þann möguleika að fjölga þeim aftur hér á landi úr einum í þrjá.
Friðrik Már Baldursson og Þráinn Eggertsson, sem sitja í nefnd um heildarendurskoðun á lögum um Seðlabanka Íslands, telja ekki er ráðlegt að setja einráðan embættismann yfir svo mikilvæga stofnun sem Seðlabankinn er, heldur einhvers konar ráð eða stjórn, en tillögur þeirra hafa verið til umræðu í fjölmiðlum nú upp á síðkastið. Þykir líklegt að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra nýti sér þessi rök nefndarmannanna og fjölgi fljótlega Seðlabankastjórum um tvo.
Seðlabankastjórar voru lengst af þrír, en eftir hrunið var lögum um Seðlabankann breytt. Þá höfðu bankastjórarnir sagt af sér, en rannsóknarnefnd Alþingis taldi þá hafa sýnt af sér vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins.
Már Guðmundsson hefur gegnt stöðu Seðlabankastjóra frá árinu 2009, með einn aðstoðarbankastjóra sér við hlið.
Margir hagfræðingar hafa goldið varhug við tillögum nefndarinnar og telja það afturhvarf til fortíðar að fjölga Seðlabankastjórum, þar á meðal Jón Daníelsson hagfræðingur og kennari við London School of Economics: „Mér finnst það algerlega afleit hugmynd,“ sagði hann nýverið í samtali við RÚV og bætti við : „Við erum með einn forsætisráðherra, einn forstjóra fyrirtækja, og almenna reglan er sú að í mikilvægum embættum þurfi einn aðili að bera ábyrgðina." Það er ekkert annað land með það vinnulag að hafa þrjá seðlabankastjóra og ég held að það sé engin þörf á því á Íslandi."