Her kvenna mótmælir Ingó – Þjóðhátíðarnefnd fundar um framhaldið

„Við í Öfgum (hóp­ur kvenna á sam­­fé­lags­­miðlin­um TikT­ok) á­samt kon­um úr AGN (Aktív­­ismi gegn nauðgun­ar­­menn­ingu á Face­­book) ó­sk­um svara frá Þjóð­há­tíðar­­nefnd, hvernig þetta sé rétt­læt­an­­legt. Hvers vegna er meira virði að ráða meinta kyn­­ferðis­brota­­menn en að virða þol­end­ur? Hérna er held­ur ekki bara tal um einn meint­an ger­anda, eða tvo. Held­ur er einnig ráðinn meint­ur elti­hrell­ir. Hvernig er það rétt­læt­an­­legt? Hvernig ætlið þið að berj­ast gegn nauðgun­um á Þjóð­há­tíð ef þið ráðið til ykk­ar meinta ger­end­ur sem sýn­ir skýra af­­stöðu ykk­ar gegn þol­end­um?,“ segir í yfirlýsingu sem birtist í morgun á TikTok og greint er frá á vef MBL.

Yfir hundrað konur skrifa undir yfir­lýsinguna.

Frétta­blaðið greindi frá því í dag að þjóð­há­tíðar­nefnd hefði samið við Ingó veður­guð um að hann stýri brekku­söngnum í ní­und­a sinn í Herj­ólfs­­­dal um versl­un­ar­mann­a­helg­in­a.

MBLhefur eftir tals­konu Öfga að þeirra fyrstu við­brögð við þeim fréttum hafi verið ó­gleði og sjokk. Segja þær Ingó vera góðan tón­listar­mann en ekki ó­missandi. „Það er vel hægt að finna ann­an í hans stað. Af hverju er ekki hægt að ráða t.d. Jón Jóns­­son eða Frið­rik Dór? Hvað hef­ur Ingó fram yfir þá? Fyr­ir utan þá meint­ar á­sak­an­ir um alls­kon­ar mis­­jafna hegðun.“

Jónas Guð­björn Jóns­son, vara­for­maður nefndarinnar, hafði ekki séð yfir­lýsinguna þegar Fréttablaðið náði af honum tali og vildi því ekki tjá sig. Samkvæmt heimildum blaðsins mun nefndin funda um málið.

Yfirlýsingunni fylgir svo nafnalisti.

„Af hverju að taka á­hætt­una eft­ir ít­rekaðar á­bend­ing­ar um meinta mis­­jafna hegðun? Hvernig væri að leyfa þol­end­um að njóta vaf­ans? Af hverju hall­ar alltaf á kon­ur hjá ykk­ur? Af hverju virðist lít­ill vilji vera til að gera bet­ur?

Þið flotta tón­listar­­fólk - Nú ger­um við okk­ur grein fyr­ir því að þetta sé klíka, í tón­list­ar­heim­in­um, en er ein­hver séns að þið hjálpið okk­ur í þess­ari bar­áttu? Setja niður fót­inn? Við biðlum til ykk­ar. Stönd­um með þol­end­um og leyf­um þeim að njóta vaf­ans. Hætt­um að ráða meinta ger­end­ur á kostnað tón­list­ar­­kvenna og þol­enda.

Virðing­ar­­fyllst - Öfgar,

Ólöf Tara Harðar­dótt­ir
Hulda Hrund Sig­­munds­dótt­ir
Tanja M. Ís­fjörð Magnús­dótt­ir
Helga Bene­dikts­dótt­ir
Ninna Karla Katrín­ar­dótt­ir
Anna Sonde
Aðal­­heiður Fríða Há­­kon­ar­dótt­ir
Bryn­hild­ur Yrsa Val­kyrja Guð­munds­dótt­ir

Á­samt AGN

Elín Hulda Harðar­dótt­ir
Birgitta Sig­urðar­dótt­ir
Sig­rún Huld Skúla­dótt­ir
Stein­unn Há­­kon­ar­dótt­ir
Elsa Björk Harðar­dótt­ir
Helga Vala Garðars­dótt­ir
Sæ­rún Ösp Þor­láks­dótt­ir
Inga Rós Vatns­­­dal
Ey­rún Eva Gunn­ars­dótt­ir
Fjóla Heið­dal
Tinna Har­alds­dótt­ir
Ing­veld­ur Gísla­dótt­ir
Krist­ín Jóns­dótt­ir
Ragna Björk Ragn­ars­dótt­ir
Ó­lína Lind Sig­urðar­dótt­ir
Jó­hanna Perla Gísla­dótt­ir
Sól­rún Ein­ars­dótt­ir
Helga Ólöf
Her­­dís Ósk Svein­björns­dótt­ir
Hall­­dóra Jón­as­dótt­ir
Silja Ástu­dótt­ir
Sig­rún Ósk Arn­ar­dótt­ir
Matt­hild­ur G. Björk Ein­ars­dótt­ir
Helga Gests­dótt­ir
Inga María Ólafs­dótt­ir
Sæ­rún Magnea Samú­els­dótt­ir
Anni­e Marín Vest­fjörð
Haf­­dís Erla Jónu­dótt­ir
Frið­gerður Ósk Jó­hanns­dótt­ir
Júlía Garðars­dótt­ir
Arna Björk Haf­berg Gunn­ars­dótt­ir
Hall­­dóra Jó­hanna Haf­­steins­dótt­ir Âû
Sara Björk Bier­ing
Þór­hild­ur Löve
Anna Lind Vign­is­dótt­ir
Birta Guð­munds­dótt­ir
Krist­rún Ýr Ein­ars­dótt­ir
Emma Ásu­dótt­ir Árna­dótt­ir
Lóa
Fanný Rósa Bjarna­dótt­ir
Sig­ur­björg Anna Þor­­leifs­dótt­ir
Edith Bech
Katrín Stef­an­ía Klemenz­ar­dótt­ir
Ingi­björg Ey­fjörð Hólm
Bylgja Júlí­us­dótt­ir
Ásta Þóris­dótt­ir
Ás­dís Virk Sig­­tryggs­dótt­ir
Mel­korka Huldu­dótt­ir
Odd­rún Ólafs­dótt­ir
Rakel Stein­berg Sölva­dótt­ir
Auður Ösp Hlíð­dal Magnús­dótt­ir
Sunn­eva Holm
Freyja Fann­berg Þórs­dótt­ir
Krist­ín Elfa Guðna­dótt­ir
Tanja And­er­­sen Valdi­mars­dótt­ir
Krist­ín Erla Bene­dikts­dótt­ir
Sandra Rut Skúla­dótt­ir
Elva Dögg Blu­­men­­stein
Krist­björg Sig­­tryggs­dótt­ir
Hall­veig Hörn
Ólöf Dóra Bar­tels Jóns­dótt­ir
Hild­ur Guð­björns­dótt­ir
Sjöfn Frið­riks­dótt­ir
Birgitta Rós Björns­dótt­ir
Gerður Yrja Ólafs­dótt­ir
Sig­ur­laug Lára
Hild­ur Sig­urðar­dótt­ir
Erla Ein­ars­dótt­ir
Sig­rún Sól Ólafs­dótt­ir
Ey­rún Eva Gunn­ars­dótt­ir
Sig­rún Huld
Ás­dís Ágústs­dótt­ir
Þuríður Ósk Gunn­ars­dótt­ir
Mar­grét Heiður Jó­hanns­dótt­ir
Elísa­bet Kristjáns­dótt­ir
Kar­in Eva Her­­manns­dótt­ir
Sunna Björg
Elín Kona Eddu­dótt­ir
Re­bekka Ros­in­berg
Ragna Björg Björns­dótt­ir
Elísa Snæ­björns­dótt­ir
Krist­ín Stef­áns­dótt­ir
Þór­unn Vign­is­dótt­ir
Sig­rún Fann­ey
Frey­­dís Dögg Stein­­dórs­dótt­ir
Ey­­dís Eir Brynju-Björns­dótt­ir
Helena Þóra Kær­nested
Edda Rún Ara­dótt­ir
Dóra Dögg
Erna Sig­rún
Eija Jans­dotter
Magnea Jón­as­dótt­ir
Urður Bergs­dótt­ir
Stein­unn Diljá Högna­dótt­ir
Sig­ríður Ása
Kol­brún Jóns­dótt­ir
Anna Linda Matt­hi­as­dótt­ir
Ragn­heiður H B Haf­­steins­dótt­ir
Tinna Eik Rakel­ar­dótt­ir
Klara Mist Páls­dótt­ir
Maggý Helga Jó­hanns­dótt­ir Möller
Ragn­hild­ur Erla Þor­­geirs­dótt­ir
Þór­halla Bjarna­dótt­ir
Sól­ey Tóm­as­dótt­ir
Hild­ur Lillien­dahl Viggós­dótt­ir
Sig­ur­rós Yrja Jóns­dótt­ir
Hrafn­hild­ur Snæ­björns­dótt­ir
Silja Ástu­dótt­ir
Helga Sara Henrys­dótt­ir
Kol­brún Erna Pét­urs­dótt­ir
Eva Dögg Jó­hann­es­dótt­ir
Krist­ín Inga Jes­per­­sen
María Rut Hin­riks­dótt­ir“