,,Sterkar konur og samskipti kynjanna koma mikið við sögu í verkefnavali Borgarleikhússins í vetur” segir Hrafnhildur Hagalín leiklistarráðunautur í ,,Fólki með Sirrý”á miðvikudagskvöld kl. 20:30. Hrafnhildur kynnir það helsta sem Borgarleikhúsið býður upp á í vetur. ,,Salka Valka” , ,,Mamma Mia” , ,,Hún er pabbi minn” , ,,Blái hnötturinn”, ,,Sending” og mörg fleiri verk verða á fjölunum. Þorsteinn Bachmann leikari sem slegið hefur í gegn í nýju íslensku leikriti ,,Sendingu” kemur líka í þáttinn og ræðir sjómanninn þrúgaða og sjálfhverfa sem hann leikur í verkinu. Og þær Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir sem leika ,,Hannes og Smára” á fjölunum í vetur setjast hjá Sirrý og syngja tilfinningaþrungin lög úr sýningunni.
Heppinn vinur Hringbrautar á Facebook vinnur árskort í Borgarleikhúsinu fyrir tvo.