Ég minnist mömmu fyrst og fremst fyrir drifkraftinn, en ég man síður eftir pabba, enda féll hann frá þegar ég var tólf ára og samband okkar var satt að segja ekki mikið, enda átti hann að heita helgarpabbi sem hentaði kannski ekki alveg hans lífsstíl.
Hér er það blaðamaðurinn, skáldið, rithöfundurinn og athafnamaðurinn Hrafn Jökulsson sem rifjar upp samskipti sín við foreldrana, Jóhönnu Kristjónsdóttur blaðakonu og Jökul Jakobsson leikskáld og útvarpsmann. Og það er raunar víða farið í samtali hans og Sigmundar Ernis i Mannamáli kvöldsins, allt frá umsvifum Hróksins, eins skrýtnasta skákklúbbs jarðarkringlunnar yfir í undrun íslenskra bænda sem skildu lítt hvað Tíminn þeirra var allt í einu farinn að skrifa í umsjá Illuga og Hrafns Jökulssona um árið, en svo fær nesjamennska Krumma Klakasonar líka rúm í spjallinu, en hvergi líður honum betur en á Ströndum norður eða hinum megin Grænlandssunds í faðmi heimamanna undir stærsta jökli norðurhvels.
Mannamál byrjar klukkan 20:00 í kvöld. .