„Síðasta dæmið er umræðuhópurinn Orkan okkar. Ég tek það fram að ég ætla ekki að taka neina afstöðu til málsins. Mér finnst bara frábært að fólk skuli nota samfélagsmiðla til að viða að sér upplýsingum, ræða málin og þannig komast að niðurstöðu. Skyldi maður ætla.
Þetta segir fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann í Morgunblaðinu. Þar gagnrýnir Logi Facebook-hópinn Orkan okkar og hvernig fólki í þeim hópi hefur verið fjarlægt þar sem það er fylgjandi Orkupakka 3 eða vill eiga samtal um kosti og galla pakkans við aðra meðlimi Facebook-hópsins Orkan okkar. Telur Logi að útiloka aðra frá hitamálum í samfélaginu sé skaðlegt fyrir umræðuna. Logi segir:
„Nú berast samt fréttir af því að nokkrum, sem hafi haft upp ólík sjónarmið, hafi hreinlega verið hent út úr hópnum. Fyrst var innleggjum þeirra eytt og svo voru þeir útilokaðir. Það er aðeins of ótrúleg tilviljun að þetta skuli allt vera fólk sem hefur eitthvað að athuga við sjónarmið þeirra sem ráða hópnum. Enda kemur í ljós að það óvenjulega við þennan hóp er að þangað eru bara þeir velkomnir sem eru sammála þeim sem fyrir eru. Hér er bara pláss fyrir eina skoðun,“ segir Logi og bætir við:
„Þá er alltaf hættan á að eftir sitji bara fólk sem er allt sömu skoðunar og skilji bara ekki ert í því að það hafi bara alltaf rétt fyrir sér. Barasta allir í hópnum eru alltaf sammála því.“
Logi kveðst hafa lært mest í lífinu með því að ræða við fólk sem er honum ósammála.
„Þannig hef ég kynnst ólíkum sjónarmiðum og lært um ýmislegt sem ég hefði að öðrum kosti aldrei vitað af. Að rökræða um mál er frábær leið til að annaðhvort skipta um skoðun eða fá sannfæringu um að maður hafi rétt fyrir sér. En víðsýni skilar sér sjaldnast á því að tala bara við fólk sem er sammála þér og ef þú þarft aldrei að standa fyrir máli þínu,“ segir Logi og bætir við:
„Hitt vandamálið er að mörkin á milli staðreynda og skoðana virðast verða óljósari. Það er kannski skuggahliðin á þessari upplýsingabyltingu. Nú hafa allir rödd og það er svo miklu einfaldara að koma skoðun sinni á framfæri. Hér áður fyrr voru bara nokkrir fjölmiðlar sem fólk fékk á hverjum degi og margir þeirra voru lokaðir nema útvöldum. Nú eru engir hliðverðir. Núna er allt opið alls staðar,“
Logi heldur fram að krafan um að fólk standi fyrir máli sínu sé nánast horfin í dag og ábyrgð orða minni. Logi segir:
„Margoft, þegar fólki er bent á að það sem það segi standist ekki skoðun, þá breytir það engu. Þetta er mín skoðun – mín staðreynd. Ég ætla að halda áfram að halda henni fram af því að mér líkar hún,“
segir Logi og bætir við að lokum:
„Stundum getur þetta verið krúttlegt og jafnvel fyndið en í raun er þetta hættulegt. Þetta skapar jarðveg fyrir ótta, fordóma og ranghugmyndir. Umræða hefur alltaf verið nauðsynleg til að komast að niðurstöðu. En umræða skilar engu ef þú talar bara við sjálfan þig.“