Heltu sér yfir starfsmann costco, fussandi og sveiandi: var miður sín en fær mikinn stuðning – „á endanum gefst fólk upp á að læra íslensku”

Í Facebook-hópnum, Sögur af dónalegum viðskiptavinum varð að loka einum þræðinum sem fjallaði um framkomu erlends starfsfólks í verslunum. DV vakti athygli á málinu fyrr í dag en í þræðinum var mikið um útlendingahatur og rasísk ummæli. Stjórnandi síðunnar greip að lokum í taumana og sagði:

„Rasismi og fordómar verða ekki liðnir í þessum hóp. Þeir sem virða ekki þessar reglur verða reknir úr hópnum. Og nei þetta er ekki brot á ykkar rétt að vera með skoðun. Ekki vera fáviti.“

Þá voru ummælum einnig eytt. Í upphaflega innlegginu stóð:

„Varð vitni að því í Costco í dag þegar einn viðskiptavinurinn gekk upp að starfsmanni í áfyllingum og spurði hann að einhverju, á íslensku. Starfsmaðurinn var erlendur og byrjaði að svara honum á ensku. Viðskiptavinurinn varð þá skyndilega reiður, strunsar í burtu og segir hátt og skýrt (á íslensku) að ef hann ætli ekki að tala íslensku þá geti hann bara átt sig. Starfsmaðurinn skyldi ekkert hvað hafði gerst og stóð bara þarna, miður sín. Viðskiptavinurinn og önnur manneskja sem var með honum gengu svo í burtu fussandi og sveiandi yfir því að starfsmaðurinn væri ekki íslenskur.“

Þá sagði einnig:

„Hvaða rugl er þetta? Er fólk svona óöruggt með sjálft sig að það finnur sig knúið til að vera með hroka og fávitaskap gagnvart erlendum starfskröftum? Er í alvörunni einhver undir sextíu ára aldri sem kann ekki í það minnsta smá ensku? Getum við ekki bara sýnt smá mannasiði inni á vinnustöðum annara?

Viðskiptavinur, ef þú ert að lesa þetta, prófaðu næst frasann „Sorry, I don’t speak english“ í stað þess að láta svona ...“

Margir tóku undir með viðkomandi og sögðu sjálfsagt að tala ensku við erlent starfsfólk sem hefði ekki enn tekist að læra málið.

Svo virðist sem meirihluti þeirra sem taka þátt telji sjálfsagt mál að ræða við erlent starfsfólk á ensku enda erfitt að læra íslensku. Ekki voru allir sammála og sagði ein kona:

 „Ef þú býrð á Íslandi þá talarðu íslensku, ef þú býrð í Noregi þá talarðu norsku, Þýskaland þá er það þýska. Þetta segir sig sjálft ef þú ætlar að búa í öðru landi en þínu þá lærir þú tungumálið, það er bara þannig.“

Þá sagði einn sem tók þátt í umræðunum og voru margir sammála:

„Það er óþarfi að úthúða og skammast í fólki sem ekki talar íslensku. Fyrirtæki ættu að hvetja starfsfólk sitt til að læra íslensku. Svo er annað að margir ný-Íslendingar hreinlega geta ekki lært íslensku því of margir tala bara ensku við það og á endanum gefst fólk upp á að læra íslensku eða telur sig ekki þurfa þess.“