Hélt skólapartí í ráðherrabústaðnum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt einkaboð í Ráðherrabústaðnum fyrir skólafélaga sína úr Menntaskólanum í Reykjavík í tilefni af 20 ára útskriftarafmæli þeirra þann 30. maí síðastliðinn. 

Samkvæmt svari forsætisráðuneytisins stóð umrætt boð yfir í hálfa aðra klukkustund, frá klukkan 19:00 til 20:30. Sigmundur greiddi sjálfur fyrir veitingar í boðinu, samkvæmt svari ráðuneytisins, þar sem um var að ræða boð á einkavegum. \"Viðbótarkostnaður forsætisráðuneytisins af því boði sem spurt er um var enginn þar sem forsætisráðherra greiddi sjálfur, í samræmi við tilefnið, allan kostnað við veitingar í boðinu,“ segir í svari  við fyrirspurn vefmiðilsins Stundarinnar frá frá Óðni H. Jónssyni, skrifstofustjóra ráðuneytisins.

Að því er fram kemur í vefmiðlinum bauð Sigmundur skólafélögum sínum í Ráðherrabústaðinn í svokallaða óvissuferð í aðdraganda kvöldverðar endurfundanna.

Nánar má lesa um einkaboðið á stundin.is.