Söngvarinn og tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson sest í gráa stólinn gegnt Sigmundi Erni í þættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld og talar þar af einlægni um líf og list sína.
Viðtalið byrjar á þeirri kostulegu sögu þegar Unnsteinn gleymdi sér í landsleik Íslands og Portúgal á EM í Frakklandi og fattaði það allt í einu í einni stórsókna síðarnefnda liðsins að hann var farinn að halda með vitlausu liði, en engu að síður getur hann vel við unað eftir að gamla móðurland hans vann sinn fyrsta stóra sigur á alvöru fótboltamóti.
Hann rekur ættir sínar í móðurlegg til afrísks ættbálkaþorps í Angóla hvar afi hans var höfðingi í fjölkvænissamfélagi. Þegar hann féll frá voru börnin svo ofboðslega mörg að koma varð þeim fyrir á ólíklegustu stöðum - og svo fór að Ana Maria, mamma Unnsteins fór ellefu ára gömul til Portúgals hvar hún hitti hvítan Íslending á strætóstoppustöð í Lissabon. Þar með hyllti undir fæðingu stráksins sem segir merkilega sögu sína og fjölskyldu sinnar í Mannamáli vikunnar, en þar fléttast saman alvara og gleði, enda hefur Unnsteinn, bróðir hans Logi Pedro og mamma þeirra kynnst vænum skömmtum af hvorutveggja eftir að þau fluttu til Íslands.
Í viðtalinu rekur Unnsteinn tilurð og sögu Retro Stefsson og hvernig þeir bræður skipta með sér verkum á sviðinu og eins hvaða aðferð þeir nota við að semja músík sem er ekkert áhlaupsverk heldur samviskusöm viðvera framan við tölvuna frá 9 til 5.
Mannamál eru frumsýnd í kvöld klukkan 20:30.