Hélt hún stæði ekki aftur upp

Annie Mist Þórisdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í crossfit, æfði yfir sig eftir að hún hafði náð titlinum öðru sinni í þessari einni erfiðustu keppnisgrein íþróttanna. Frá þessu greindi hún í samtali við Sigmund Erni Rúnarsson í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Atvikið gerðist árið 2012, Annie var stödd á æfingu í ræktinni og fann að henni lokinni að bakið var að gefa sig - og raunar gott betur; hún hneig niður í gólfið, fann engan mátt lengur í fótunum og var um skeið þess full viss að hún myndi aldrei ganga aftur. Hún sagðist í viðtalinu, sem finna má undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is, aldrei fyrr hafa orðið jafn skelfd á ævinni - og sá enda fram á það að keppnisferli hennar væri að ljúka.
Þennan örlagadag hafði Annie í reynd farið á svig við eigin æfingareglur; æft vel umfram það magn þrauta sem hún hafði sett sér í skipulögðu kerfi sínu. Hún læstist í bakinu og það tók hana marga mánuði að ná sér, sem loks tókst þó að fullu sakir réttrar meðferðar lækna og sjúkraþjálfara, heima og erlendis, svo og mikillar hvatningar fjölskyldu og vina. En þetta atvik kenndi henni að fólk á að hlusta á líkamann sinn, jafnvel líka afreksfólk.


Horfa á Lífsstíl hér: