Leikarinn Jack Nicholson hélt framá 37 ára aldur að hin lífræðilega móðir sín væri systir sín, en hann var settur í fóstur hjá ömmu sinni og afa þegar hann var ársgamall. Fjallað verður nánar um málið í þættinum Hvíta tjaldið í kvöld, en þar er líf og starf Jacks Nicholson rakið. Einnig verður stiklað á stóru í sögu hryllingsmynda og lögð sérstök áhersla á hrjáðar sálir. Minnst verður á kvikmyndir eins og Frankenstein, Psycho og The Shining auk annarra.
Ekki missa af Hvíta tjaldinu á sjónvarpsstöðinni Hringbraut kl. 21:30 í kvöld. Umsjón: Þórir Snær Sigurðarson