Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi segir að árið 2008 hefði sonur hans farið að hágráta og haldið að krónan væri að hrynja. Þá voru þeir feðgar staddir fyrir utan Krónuna og sonurinn aðeins fjögurra ára.
Hann hafði þá tekið eftir þeirri umræðu sem var áberandi á þeim tíma í fréttum og hjá fullorðnu fólki, en gerði ekki greinamun á því hvort fólk væri að tala um að verslunin Krónan myndi hrynja, eða íslenska myntin.
Að sögn Breka, varð þetta atvik til þess að þau hjónin ákváðu að fara að kenna börnunum sínum meira um fjármál, en Breki var viðmælandi í þættinum Ég bara spyr, sem Hringbraut sýndi í vikunni. Þar kom fram að algengara er að foreldrar ræði við börn sín um kynlíf en fjármál.
Rakel Sveinsdóttir, umsjónarmaður þáttanna spurði um hvað fólk ætti að ræða við börn sín og hvað fólk gæti gert, ef það teldi sig ekki nægilega upplýst sjálft í fjármálum, til að fara að kenna börnum sínum um þau fræði. Breki sagði að vel væri hægt að bera þetta saman við fótbolta. Það væru ekkert endilega bestu fótboltamennirnir sem yrðu bestu þjálfararnir. Foreldrar ættu því frekar að velta því fyrir sér hvernig þau gætu verið fyrirmyndir og eins hvaða leiðir væri hægt að fara. Þá væru líka til góðar upplýsingasíður sem foreldrar gætu stuðst við og nefndi hann þar sem dæmi fræðsluvef Arion banka, þar sem fjármálafræðsla miðast við mismunandi aldurshópa barna.
Þátturinn Ég bara spyr verður endursýndur á Hringbraut á föstudagskvöldið og á sunnudag. Í þættinum eru einnig teknar fyrir fyrirspurnir frá lesendum Spyr.is og áhorfendum Hringbrautar, um erfðamál.