Helstu umferðargötur í reykjavík rykbundnar í dag

Ákveðið hefur verið að rykbinda flesta þjóðvegi og stofnbrautir í þéttbýli Reykjavíkur í dag. Í gær var svifryk yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík og því var þessi ákvörðun tekin. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg

Þar segir að fjölfarnar götur verði rykbundnar til að bæta loftgæði í borginni. Magnesíum klóríði sem reynst hefur vel til rykbindingar verður úðað á stofnbrautir í Reykjavík og fleiri fjölfarnar götur, eins og Bústaðaveg og Suðurlandsbraut.

Ákveðið var að ráðast í þessar aðgerðir að ráðum viðbragðsteymis um loftgæði, sem er samstarfsvettvangur Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Veðurhorfur næstu daga auka líkur á svifryki einkum þar sem umferðarhraði er mikill.