Gary Cohn, helsti efnahagsráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta ætlar að hætta. Hann er sá síðasti í langri röð háttsettra embættismanna Hvíta hússins sem hverfur úr embætti eftir skamma viðdvöl.
New York Times sagði frá þessu í frétt í kvöld. Samkvæmt heimildamönnum blaðsins innan Hvíta hússins er ekkert eitt sem veldur því að Cohn hættir. Þó er nokkuð ljóst að að hann hefur þurft að lúta í lægra haldi í ákvörðunarferli forsetans um tollalækkanir á stáli og áli, sem blaðið segir hafa haft yfirbragð villta vestursins. Vitað var að Cohn er ekki stuðningsmaður verndartolla.
Reiknað er með að Cohn láti af störfum á næstu vikum.