Um helmingur íslenskra unglinga vill helst búa í útlöndum í framtíðinni og þeim fjölgar á milli ára sem telja mjög líklegt að svo verði raunin. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. Mun fleiri unglingar vilja búa erlendis nú en fyrir hrun.
Akureyri Vikublað greinir frá. Rannsóknin náði til um fjögur þúsund unglinga, en hún er hluti evrópsku ESPAD rannsóknarinnar og nær til allra íslenskra unglinga í 10. bekk grunnskóla.
Þóroddur Bjarnason er prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri og stjórnandi rannsóknarinnar. Í samtali við Akureyri Vikublað segir hann búsetuóskir unglinga geta gefið góða vísbendingu um stemmninguna í unglingasamfélaginu. Þrátt fyrir að svör 16 ára unglinga séu ekki endilega áreiðanlegur mælikvarði á framtíðarákvarðanir þeirra, hafi íslenskar rannsóknir sýnt fram á að búsetufyrirætlanir unglinga hafi í gegnum tíðina haft gott forspárgildi fyrir þróun einstakra byggðarlaga yfir lengri tíma. Enn fremur segir hann að búsetuóskirnar þurfi ekki endilega að ganga eftir, viðhorfsbreytingin ein og sér geti sagt mikið til um tíðarandann í samfélaginu.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar vill um helmingur íslenskra unglinga í 10. bekk grunnskóla búa í útlöndum í framtíðinni. Rannsóknin fór einnig fram árin 2003 og 2007, en þá vildi um þriðjungur íslenskra unglinga búa erlendis. Þeim hefur því fjölgað eftir hrun sem sjá erlend ríki sem vænlegan búsetukost.