Helmingur landsmanna, 50 prósent, er andvígur því að þriðji orkupakki ESB taki gildi á Íslandi. Tæplega þriðjungur, 31 prósent, kveðst fylgjandi því að hann verði innleiddur. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.
Lítill stuðningur við þriðja orkupakkann er meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarflokkanna þriggja en tæplega helmingur þeirra, 49 prósent, kvaðst andvígur innleiðingu þriðja orkupakkans og rúmur fjórðungur, 27 prósent var fylgjandi.
Stuðningsfólk Flokks fólksins og Miðflokksins reyndist nánast alfarið andvígt orkupakkanum, eða 98 prósent. Þar af voru 91 prósent mjög andvíg.
Stuðningsfólk annarra stjórnarandstöðuflokka, Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar, reyndist hins vegar nokkuð samstíga í stuðningi sínum við þriðja orkupakkann. Kváðust 59 prósent þeirra fylgjandi innleiðingu hans. Þar af voru 31 prósent mjög fylgjandi.
Svarendur sem kváðust hlynntir inngöngu í Evrópusambandið reyndust líklegri til að segjast fylgjandi innleiðingu orkupakkans, eða 64 prósent, heldur en þau sem kváðust andvíg inngöngu í ESB, eða 11 prósent.
Könnunin var framkvæmd dagana 30. apríl til 3. maí 2019 og var heildarfjöldi svarenda 941 einstaklingur, 18 ára og eldri.