Helmingur lagafrumvarpa dagar uppi

Einungis um 70% þeirra stjórnarfrumvarpa sem ríkisstjórnin lagði fram á nýafstöðnu þingi komst í gegnum Alþingi; þriðjungur málanna ýmist strandaði þar innan dyra eða dagaði uppi.

Þetta kemur fram í samantekt Fréttablaðisns í dag, en þar kemur jafnframt fram að staðan er enn verri þegar litið sé til allra lagafrumvarpa, það er að segja bæði stjórnarfrumvarpa og þeirra sem þingmenn leggja fram, en af þeim 207 lagafrumvörpum sem lögð voru fram af þjóðkjörnum fulltrúj landsmanna urðu einungis 105 þeirra að lögum, eða því sem næst helmingurinn.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra orðaði það svo í þættinum Þjóðbraut hjá Páli Magnússyni í síðasta mánuði að nauðsynlegt væri að endurskoða allt það kerfi sem lítur að framlagningu þingmála hér á landi; sér sýndist að stjórnarandstaðan þyrfti að koma miklu fyrr að frumvarpsgerðinni í þeim málum sem stjórnin væri að leggja fram, jafnvel þegar innan ráðuneytanna, ekki gengi lengur að frumvörp komi hálfköruð út úr stjórnkerfinu eins og tíðkast hefði árum saman, líka í tíð sinni sem forsætisráðherra eins og hann viðurkenndi í þættinum.