Rétt um helmingur Íslendinga telur sig vera trúaðan, samkvæmt alþjóðlegri könnun Gallup. Það er mun minna hlutfall en sem nemur heimsmeðaltali fólks sem skilgreinir sig trúað.
Könnunin var gerð í 65 löndum og sá Gallup á Íslandi um framkvæmdina hér á landi. 64 þúsund manns voru spurð um trúarafstöðu sína - og ef allur heimurinn er undir segjast 63% vera trúuð en 22% ekki trúuð. Hlutfall trúleysingja er 11%.
Á Íslandi skilgreinir 51% Íslendinga sig sem trúað, en 30%. Trúleysingjar hér á landi eru 14%.
Samkvæmt könnuninni eru Taílendingar trúaðasta þjóð heims, en þar skilgreina 94% sig sem trúaða einstaklinga. Þar á eftir koma Armenar, Bangladessbúar, Georgíumenn, Marokkóar og og Fiji-eyjaskeggjar.
Hlutfall trúleysingja er langmest í Kína, 61%. Í Hong Kong eru 34% íbúa trúleysingjar og 31% í Japan. Evrópuríki raða sér í næstu sæti fyrir neðan, svo sem Tékkland, Spánn, Belgía, Frakkland, Þýskaland, Svíþjóð og Holland.
Í Vestur-Evrópu og Eyjaálfu eru nær 50 prósent sem segjast annað hvort ekki vera trúaðir einstaklingar eða segjast vera trúleysingjar. Mest skiptar skoðanir eru einnig á þessum svæðum þar sem nálægt fjórir af tíu segjast trúaðir og svipað hlutfall segist ekki vera trúaðir einstaklingar. Á þessum tveimur svæðum ásamt Asíu er einnig að finna flesta þá sem segjast vera trúleysingjar eða rúmlega einn af hverjum tíu.
Svíar eru minnst trúaðir Vesturlandabúa en hátt í átta af hverjum tíu Svíum segjast annaðhvort ekki vera trúaðir einstaklingar eða segjast vera trúleysingjar.