Ef marka má óformlega skoðanakönnun sem verið hefur á forsíðu hringbrautar.is síðustu daga hafa langflestir Íslendingar fisk á borðum sínum í hverri viku. Könnunin bendir til þess að um helmingur landsmanna neyti fiskmetis tvisvar eða oftar í viku - og vekur sérstaka athygli að vel innan við tíu prósent aðspurðra segjast aldrei borða fisk.
Margs konar fiskur hefur verið á borðum Íslendinga um aldir og sú var tíðin lengi vel að fiskur af einhverju tagi var uppistaðan í meirihluta máltíða á íslenskum heimilum í viku hverri. Vísast er sú kynslóð sem man þessa tíma komin á efri ár, en þó virðast landsmenn enn sem fyrr vera mjög hrifnir af fiskinum eins og fyrrnefnd könnun ber með sér þótt líkast til gæti meiri fjölbreytni í matarinnkaupum fólks í dag en fyrr á tímum.