Helmingi flugferða vestur aflýst

Air Iceland Connect, áður Flugfélag Íslands, þurfti að aflýsa tæplega helmingi flugferða til og frá Ísafirði í nýliðnum febrúar. Það er mun meira en í fyrra þegar hlutfallið var 28 prósent.
 
Það sem af er ári hefur þurft að fella niður tæplega 40 prósentum fleiri flugferðir en í fyrra, 94 flug á þessu ári miðað við 68 í fyrra. Eitt flug er einn leggur, ýmist til eða frá Ísafirði, að því er fram kemur á ruv.is í morgun. Að jafnaði þarf að fella niður um 25 prósent ferða til og frá Ísafirði vegna veðurs yfir vetrartímabilið sem nær frá október fram í mars. Samkvæmt upplýsingum frá Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Air Iceland connect, voru mánuðirnir fyrir jól betri en á nýju ári þegar einungis sjö prósentum fluga var aflýst í október en í nóvember og desember voru 18 prósent fluga felld niður.