Viðsjárvert veður er á mörgum helstu þjóðleiðum landsins og til marks um það er að enn einu sinni þurfti að grípa til lokunar á Hellisheiði í nótt vegna kafladsbyls og mikils skafrennings.
Þrengslin eru þó enn opin þótt raunar megi búast við því að leiðinni verði lokað fljótlega. Snjó kyngir niður á svæðinu. Báðum þessum leiðum var lokað í gærkvöld. Vegurinn um Þrengsli var opnaður fyrir umferð laust fyrir miðnætti, en nokkuð var liðið á nóttina áður en umferð var hleypt yfir Hellisheiðina á ný en henni hefur nú verið lokað.
Þá er óvissustig á Mosfellsheiði og má reikna með að henni verði einnig lokað bráðum. Annars eru hálkublettir og snjókoma á Höfuðborgarsvæðinu. Það er snjóþekja og snjókoma á Reykjanesbraut og á Reykjanesi. Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði og í Þrengslum. Þæfingsfærð er í Hvalfirði. Það er víðast hvar snjóþekja eða hálka á Suðurlandi og snjókoma. Þæfingsfærð austanmegin við Þingvallavatn. Það er hálka, snjóþekja eða þæfingur og skafrenningur eða éljagangur á vegum á Vesturlandi. Þæfingsfærð er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku.Á Vestfjörðum þæfingsfærð eða þungfært á fletum fjallvegum en snjóþekja eða hálka á lálendi og verið að hreinsa.