Helgin: umferðatafir í mosfellsbæ

Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er umferð þar beint um hjáleið. Hraði er tekinn niður í 50 km/klst að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Áætlað er að nota þurfi hjáleiðina fram yfir miðjan september og að framkvæmdum ljúki í nóvember, en unnið er auknu umferðaröryggi á svæðinu, meðal annars gerð göngubrúar yfir þennan einn umferðarþyngsta vegakafla á þjóðleið 1.                       

Í tilkynningu Vegagerðarinnar eru vegfarendur beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni - og því í raun ekkert annað að gera en að anda rólega og niður í kviðinn áður en lagt er af stað í helgarfríið þessa mestu ferðahelgi ársins.