Karl Ágúst Úlfsson dregur þjóð sína sundur og saman í háði og spotti í þætti sínum Helginni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en hann og nafni hans Olgeirsson fá þess utan til sína góða gesti eins og vanalega.
Það er leikarinn góðkunni, Guðmundur Ólafsson sem sest í sóffann hjá kollega sínum í kvöld, en með í för er líka sú sprellfjöruga leikkona, Aðalbjörg Árnadóttir sem leikur með Guðmundi í nýrri uppfærslu á Tenórnum sem er því ekki lengur einleikur heldur tvíleikur, en sýningar Guðmundar á verkinu hafa notið fádæma vinsælda um allt land undanfarin misseri.
Guðmundur tekur vitaskuld lagið í þættinum við undirleik Olgeirssonar, en sá síðarnefndi hjálpar líka Úlfssyni í nokkrum vel völdum lögum í inngangsorðum hans þar sem sungið er meðal annars um vinavæðinguna og draum fangans.
Helgin er frumsýnd klukkan 20:00 í kvöld og endursýnd strax klukkan 22:00.