Helgin: hundarnir fara á kostum

Leikstjórinn, leikarinn og rithöfundurinn Karl Ágúst Úlfsson tekur á móti slíkum höfuðsnillingum í þætti sínum, Helginni í kvöld að enginn má missa af því sem þar gerist.

Það má enda búast við alla vega hundakúnstum í þættinum þegar dúóið Hundur í óskilum tekur hljóðfæri sín öll til kostanna, en félagarnir sem skipa grúppuna at arna, norðanpiltarnir Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson troðfylla myndverið með einhverju ótrúlegasta safni hljóðfæra sem sést hefur í íslensku sjónvarpi.

Þeir taka náttúrlega lagið, meða, annars á hækjur, svo sem sést á myndinni sem fylgir þessari fregn.

Þessi einhver skemmtilegasti skemmtiþáttur síðustu vikna, svo ekki sé meira sagt, hefst stundvíslega klukkan 20:00 í kvöld og verður endursýndur strax klukkan 22:00 ef veður leyfir.