Hiti fer upp undir 20 gráður um suðvestanvert landið þegar líða tekur á Verslunarmannahelgina, en hitan verður mjög misskipt milli landshluta enda er jafnvel hætt við næturfrosti á norðanverðum Vestfjörðum á laugardag.
Mjög svalt verður á Hornströndum um helgina enda eru norðanáttirnar mjög þrálatar og gætu hæglega fært með sér hríðarmuggu ef sá gállinn verður á þeim. Hæglætisveður verður annars víðast hvar um landið um helgina - og ekki búist við neinum rokum sem geta verið fremur hvimleiðar um þetta leyti árs þegar landsmenn tjalda hverjir um aðra þvera úti í guðs grænni náttúrunni.
Á morgun er hætt við smávegis rigningu um sunnanvert landið en þurru og mildu veðri norðanlands og 10 til 16 stiga hita um sunnanvert landið.
Á laugardag verður rigning eða súld á Vestfjörðum og Norðurlandi en skýjað með köflum eystra og syðra og hiti 5 til 15 stig syðst.
Á sunnudag verður skýjað að mestu og smáskúrir um sunnanvert landið en bjart víða annars staðar og hiti 10 til 15 stig suðvestanlands.
Á mánudag verður loks þurrt og bjart á mest öllu landinu og hlýjast sem fyrr, um 18 stig, um suðvestanvert landið.
Vindur um Verslunarmannahelgina fer varla yfir 10 metra á sekúndu.