Helgin: grínarinn sem varð prestur

Karl Ágúst Úlfsson lætur meira og minna alla heyra það í þætti sínum, Helginni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld og þeir sem mega búast við vænni sneið af háði eru meðal annars forkólfar Samfylkingarinnar, óvinir RÚV, íslenskir miðlar, útgerðaraðallinn og framliðin stjórnarskrá.

Gestur Karls Ágústs að þessu sinni er gamli Radíusbróðirinn Davíð Þór Jónsson sem hefur marga fjöruna sopið, en grínarinn at arna skipti heldur betur um gír og yfirgaf gjálífið í skiptum fyrir innri frið. Hann er nú prófastur Austfirðinga og býr á Eskifirði þar sem hann unir hag sínum vel, en milli þess að sinna söfnuði sínum skrifar hann bækur fyrir fólk á öllum aldri.

En látum einn brandara úr gamni kvöldsins fylgja þessari frétt:

\"Fólk deilir um hvort hægt sé að eiga samskipti við framliðið fólk eða ekki og hvort eitthvað sé til sem heiti skyggnigáfa. Ég er sannfærður um að þessar gáfur eru til og ég vil nýta hæfileika miðla til dæmis til að ná sambandi við framliðin kosningaloforð. „Hér er komið gamalt loforð sem vill minna á sig. Þetta er loforð Framsóknarflokksins um afnám verðbóta á lánum. Kannast einhver við það? Enginn? Skrítið.“ Við ættum líka að fá miðla til að reyna að hafa uppi á fylgi Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar. Í hvaða vídd skyldi það vera statt núna? Gætu ekki skilanefndir líka notað sér þjónustu miðla til að ná sambandi við framliðnar kennitölur? Eða gamlar bankainnistæður sem hafa flutt sig yfir móðuna miklu. Möguleikarnir eru ótæmandi,\" segir Karl Ágúst meðal annars í kvöld.

Þátturinn er frumsýndur klukkan 20:00 og endursýndur strax klukkan 22:00.