Helgin: bálhvasst og mikil ofankoma

Bálhvasst verður víða um land næstu daga með mikill ofankomu sem kemur til með að teppa umferð á fjallvegum og niður í byggð sem minnir alla ökumenn á að fara með sérstakri gát og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu og allra síst á illa útbúnum bílum. 

Dagurinn í dag er einna þokkalegastur en nokkrum kulda, allt að 11 stigum inn til landsins, en svo brestur hann á með vaxandi austanátt á morgun með snjókomu eða slyddu víða, norðaustan 18 til 25 m/s undir kvöld, en hvassast verður þá sunnan- og vestanlands í heldur hlýnandi veðri.

Um helgina gengur í hvassa norðaustanátt, en stormur nyrst á landinu á laugardagskvöldið. Víða verður snjókoma, en slydda með austurströndinni. Heldur dregur úr frosti um helgina sem veit á myndum mikilla grýlukerta sem geta verið mannskæð - og eru eigendur híbýla minntir á að þeir eru ábyrgir fyrir þ´ví að hreinsa drjólana af þakbrúnum.