Helgi: „Vonandi fær svo Kristján bara Edduverðlaun, enda fáir uppteknari af þeim en hann"

„Ég vona bara að þetta gangi vel hjá þeim og verði skemmtilegt. Og vonandi fær svo Kristján bara Edduverðlaun, enda fáir uppteknari af þeim en hann," sagði Helgi Seljan þegar Fréttablaðið óskaði viðbragða hans í gær vegna tengsla Samherja við gerð Áramótaskaupsins í ár.

Fréttablaðið greinir frá.

Fram hefur komið að Kristján Vilhelmsson, einn aðaleigandi Samherja sem á framleiðslufyrirtækið sem framleiðir Skaupið í ár, vildi láta taka Edduverðlaun Helga Seljan af honum vegna Seðlabankamálsins eftir að Helgi Seljan var valinn sjónvarpsmaður ársins tvö ár í röð.

Kristján sendi tölvu­póst til fram­kvæmda­stjóra Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unnar sem veitir Eddu­verð­launin 17. jan­úar árið 2019 og fór fram á að Helgi yrði sviptur Eddu­verð­laun­um.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segist ekki hafa séð fyrir að Samherji tengdist Skaupinu með eignarhaldi á félaginu sem framleiðir Skaupið.

„Við erum að skipta við reyndan framleiðanda, höfunda skaupsins, þeir halda utan um það verkefni óháð því hvernig eignarhaldi á framleiðslufyrirtæki er háttað,“ segir útvarpsstjóri.