Helgi tekur gagnrýninni sem hrósi: „Ég held að það hafi aldrei gerst“

Tónlistarmaðurinn Helgi Björns segist lýta á gagnrýni sem þáttur hans „Það er komin Helgi“ hafi hlotið sé í raun og veru hrós. Fréttablaðið greinir frá þessu. Ýmsir urðu fyrir vonbrigðum síðustu helgi þegar þátturinn var mun styttri en kynnt hafði verið., en hann hafði verið auglýstur frá klukkan 20 til 21.12, en hann endaði um klukkan 20.43.

„Við höfum verið að reyna koma honum aðeins niður en það hefur ekki tekist betur en þetta. Fyrr en um síðustu helgi þá styttist hann kannski heldur meira en við ætluðum. Ég var svo mikið að reyna vanda mig að dvelja ekki við ákveðna hluti,“ sagði Helgi við Fréttablaðið, en hann lítur svo á að einnig sé um hrós að ræða.

„Það sem kom mér hins vegar mjög skemmtilega að óvart, ég held að þetta sé í fyrsta skipti í íslenskri sjónvarpssögu, sem það hefur verið kvartað rosalega yfir því að einhver sjónvarpsþáttur hafi verið alltof stuttur. Ég held að það hafi aldrei gerst.

Ég verð að segja það í ljósi þess þá er þetta nú bara ansi gott hrós fyrir þáttinn í sjálfu sér að fólki skuli kvarta svona heitt yfir því að hann hafi verið of stuttur,“