„Það eina sem mig langar að vita núna er hvaða PR-maður ráðlagði Ríkislögreglustjóra að fara í viðtal við Moggann? NB Viðtal sem hann fékk væntanlega að lesa yfir, en láta samt þessi spillingarbrigsl standa? Að klúðra svona viðtali er eitthvað sem krefst einbeitts brotavilja.“
Þetta segir fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan sem tjáði sig um mál Haralds Johanessen ríkislögreglustjóra á Twitter, en DV vakti athygli á málinu. Átta af níu lögreglustjórum landsins hafa lýst yfir vantrausti á Harald ásamt landssambandi lögreglumanna eftir að Haraldur kom fram í viðtali við Morgunblaðið og lýsti því yfir að spillingu mætti finna innan lögreglunnar.
Helgi velti því fyrir sér hvaða almannatengslafulltrúi hefði ráðlagt Haraldi að fara í viðtalið og komst fljótlega að því að ráðgjafarfyrirtækið KOM starfar fyrir embætti ríkislögreglustjóra. Áður hefur KOM verið til umræðu í fjölmiðlum vegna tengsla þess við Sjálfstæðisflokkinn.
„Almáttugur! Þetta gat þá versnað! Það er enginn eins sammála því og meðeigandi Friðjóns, að ótækt sé að ríkið sé látið borga fyrir þjónustu sem það síðan fær ekki. Þetta er eins og að borga ÍAV fyrir að glerja Hörpuna en að þeir mæta og rífi þakið af,“ sagði Helgi þegar hann komst að því um hvaða fyrirtæki var að ræða.
KOM hefur mikil tengsl innan Sjálfstæðisflokksins og gáfu þau flokknum vinnu sína þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir var í vandræðum. Stundin greindi frá því á sínum tíma og greindi hún einnig frá því að KOM aðstoðaði Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra vegna landsdómsmálsins.
Þá segir Helgi á öðrum stað: „Það eina sem mig langar að vita núna er hvaða PR-maður ráðlagði Ríkislögreglustjóra að fara í viðtal við Moggann? NB Viðtal sem hann fékk væntanlega að lesa yfir, en láta samt þessi spillingarbrigsl standa? Að klúðra svona viðtali er eitthvað sem krefst einbeitts brotavilja.“
DV greinir frá því að Björgvin Guðmundsson meðeigandi Friðjóns í KOM hefur mikið fjallað um málefni Sjálfstæðisflokksins á Twitter. Þá var Gísli Freyr Valdórsson ráðgjafi hjá KOM dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi vegna aðildar sinnar í Lekamálinu. Starfaði hann á þeim tíma sem aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Þá segir einnig á vef DV:
Annar eigandi KOM, Friðjón R. Friðjónsson starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann hefur sterk tengsl inn í Sjálfstæðisflokkinn en hann hefur boðið sig fram í prófkjörum hjá flokknum ásamt því að hafa starfað sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar.