Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan segir núverandi kjördæmakerfi vera brandara:
„Það er einn þingmaður með fasta búsetu í gamla Austurlandskjördæmi á leið á þing. Þessi kjördæmaskipting er joke,“ segir Helgi á Twitter. „Það er hæpið að verri niðurstaða fengist að þessu leyti ef landið væri eitt kjördæmi. Þetta system er joke.“
Miklar umræður sköpuðust um þetta en kjördæmakerfið hefur lengi verið umdeilt. Sprettur reglulega upp gagnrýni í ljósi þess að allir þingmenn af landsbyggðarkjördæmum fá 130 þúsund króna aukagreiðslur án þess að tekið sé tillit til þess hvort þeir búi á höfuðborgarsvæðinu eða ekki.
Einn netverji sagði það fáránlegt að skipta Reykjavík upp, því svaraði Helgi:
„Það er langt í frá það galnasta við þetta kerfi. Sú staðreynd að íbúi í Mosfellsbæ sé með hálft atkvæði íbúa á Akranesi er til dæmis galnari.“