Helgi Seljan telur áhrifavald hafa keypt umfjöllun í Vogue

Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan sakar áhrifavaldinn Línu Birgittu um að hafa greitt fyrir pláss í tískutímaritinu Vogue. Lína tjáði fylgjendum sínum það á Instagram á fimmtudag að Vogue hefði fjallað um íþróttafatalínu hennar í nýjasta tölublaði sínu.

„Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja! Vogue var að skrifa um Define The Line Sport í nýjasta blaðinu sínu!“ sagði Lína á Instagram á fimmdudaginn. „Ég er hálfpartinn orðlaugs yfir þessu og er varla að trúa því. Ég er ein þakklát kona og gæti sprungið úr þakklæti í orðsins fyllstu merkingu.“

Helgi tjáði sig um frétt mbl um umfjöllun Vogue. Fyrirstögn fréttarinnar er „Lína Birgitta í einu frægasta tískutímariti heims“ en segir Helgi á Twitter að réttari fyrirsögn væri „Lína Birgitta keypti smáauglýsingu í útlensku blaði“. Hann lætur fylgja með mynd sem sýnir að hægt er að kaupa auglýsingar hjá Vogue einmitt á þeim síðum þar sem finna má umfjöllunina um tískulínu Línu.

Þar má sjá að hver auglýsing kostar 680 pund en það gera um 114 þúsund íslenskar krónur.