Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjar.net og fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍBV, hefur sett á fót undirskriftasöfnun til að skora á þjóðhátíðarnefnd að endurskoða ákvörðun sína að afbóka Ingó Veðurguð á hátíðina í ár.
Tryggvi Már segir í pistli á Eyjar.net að hann vilji að þjóðin aðstoði nefndina að endurskoða ákvörðun sína.
„Ekkert nýtt hafði komið fram í umræðunni um málið milli þess að Ingó var tilkynntur til leiks þar til að nefndin bognaði og tilkynnti um afbókun listamannsins,“ skrifar Tryggvi.
„Engin meint fórnarlömb hafa stigið fram. Meira að segja öfgahópurinn segist ekki hafa nafngreint neinn. Hvorki meinta þolendur né meintan geranda.“
Hefur hann því sett upp undirskriftalista. „Kjarni málsins er þessi: Það er ótækt með öllu að dómstóll götunnar stjórni því hverjir komi fram á viðburðum á Íslandi. Engin kæra liggur fyrir og því er engin rannsókn í gangi af hálfu lögreglunnar.“
Sjónvarpsstjarnan Helgi Seljan sendir sterk skilaboð til Tryggva og þeirra sem ætla að skrifa undir. „113 Húsvíkingar geta í dag sagt ykkur hversu góð hugmynd það er - og hversu vel hún stenst tímans tönn - að safna undirskriftum. Og konan sem söfnunin beindist gegn, getur sagt ykkur hvers vegna fæstar þeirra kæra.“
113 Húsvíkingar geta í dag sagt ykkur hversu góð hugmynd það er - og hversu vel hún stenst tímans tönn - að safna undirskriftum. Og konan sem söfnunin beindist gegn, getur sagt ykkur hvers vegna fæstar þeirra kæra.https://t.co/6tVodffljY
— Helgi Seljan (@helgiseljan) July 6, 2021
Vísar hann í viðtal við Guðný Jónu Kristjánsdóttur sem ræddi við Kastljós árið 2013 um viðbrögð Húsvíkinga við því að hún kærði nauðgun sem hún varð fyrir árið 1999, þá sautján ára. 113 bæjarbúar skrifuðu undir yfirlýsingu til stuðnings nauðgaranum og fjölskyldu hans.