Helgi Seljan, einn beittasti blaðamaður landsins, er ómyrkur í máli í færslu á fésbók þar sem grein Viðskiptablaðsins, skoðun Trausta Hafliðasonar, blaðamanns, kveikir í fréttamanninum landskunna.
Í greininni er fjallað um leiðbeiningar fyrir fjölmiðla sem stjórnvöld vilja setja og eru forskrift um hvernig fjalla eigi um geðheilbrigðismál.
Blaðið vitnar til þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára. „Settar verði fram leiðbeiningar fyrir fjölmiðla um hvernig unnt er að fjalla um geðheilbrigðismál án þess að alið sé á fordómum.\"
Á að skipa starfshóp um málið og fylgja svo eftir með markvissum hætti. Mætti halda fram að ritskoðun hafi verið boðuð ef tillagan verður samþykkt.
Við þingsályktunartillögunni bregst Helgi Seljan og skrifar: „Það er eitthvað verulega brogað við það að stjórnvöld skuli ætla að fara að hlutast til um það hvernig fjölmiðlar fjalla um málefni geðsjúkra. Hvernig væri að stjórnvöld færu einfaldlega að sinna málefnum geðsjúkra.“
Svo setur Helgi fram hugmynd: „Hættum að fangelsa geðsjúka. Hættum að vista þá í einangrun, jafnvel vikum saman, fyrir það eitt að veikjast af geðsjúkdómi sínum. Gerum upp þann smánarblett sem vistun geðsjúkra afbrotamanna á hræðilegum erlendum stofnunum og fangelsum til áratuga, var. Hættum að mismuna fólki á grundvelli efnahags sem glímir við geðraskanir. Hættum að vista fólk á geðdeildum af því að ríki og borg geta ekki komið sér saman um hver eigi að leysa húsnæðisvanda fólksins.
Og hafi stjórnvöld áhuga á að fara að rýna í fjölmiðlaumfjöllun um geðheilbrigðismál, væri kannski ágætt fyrir stjórnvöld að lesa þær fjölmörgu fréttir og fréttaskýringar sem þegar liggja fyrir - ítrekaðar og margítrekaðar - sem staðfesta aðgerðar- og sinnuleysi þessara sömu stjórnvalda í þessum málum.“