Ein áhugaverðustu skoðanaskipti Internetsins eiga sér nú stað á facebooksíðu Helga Seljan. Þar gerir fjölmiðlakappinn úr Kastljósi, sjónvarpsmaður Íslands, að athugunarefni að nýráðinn Hæstaréttardómari, Karl Axelsson, segist ótengdur hlutafélagi eftir að hafa skráð eignarhald þess frá sjálfum sér á nafn konu sinnar.
\"Það þarf fleiri svona prinsipp-menn í Hæstarétt,\" skrifar Helgi og leynir ekki bitinu.
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður kveður sér hljóðs og vill vita meira um málið. Sveinn Andri skrifar á þræði Helga að öllu máli skipti um hverskonar starfsemi sé að ræða.
Helgi vitnar þá í lög þar sem segi að dómara sé heimilt að eiga hlut í öðrum félögum og atvinnufyrirtækjum en þeim, sem sérstakar lögfestar hömlur gildi um varðandi eignaraðild. Skylt sé dómara að tilkynna nefnd um dómarastöf um eignarhlut sinn í félagi, sem hafi skráð gengi í verðbréfaviðskiptum, sé hann að verðmæti allt að 3.000.000 króna. Sama eigi við um önnur félög, sem dómari á allt að 5% hlut í. Leita skuli heimildar nefndarinnar sé eignarhlutur dómara í félagi umfram fyrrnefnd mörk, sem greinir að framan.
Helgi Seljan spyr Svein Andra hvort Karl hafi komið félaginu yfir á konuna sína til að losna undan fyrrnefndum kvöðum.
Sveinn Andri spyr á móti hvort félag eiginkonunnar sé fjármálafyrirtæki og eftirlitsskylt sem slíkt gagnvart FME? \"Ef hann [Karl] átti ekki í þessu félagi þegar hann sótti um starf dómara þá sé ég ekki hvað er issue hérna.\"
Því svarar Helgi Seljan að kannski sé það grundvallarmálið. Að honum og Karli finnist þetta ekkert issue.
Eiður Svanberg Guðnason, fyrrum þingmaður og sendiherra, er sammála Helga um álitasefnið. Hann vitnar til þess að þegar hann hafi lesið Moggann í morgun hafi hann þurft að lesa tvisvar þar sem segi: \"Sú breyting hefur orðið á högum Karls síðan hluthafaskrá Fjárfestingarfélagsins Akureyrin ehf. er dagsett að hann var skipaður hæstaréttardómari haustið 2015. Karl segist aðspurður ótengdur félaginu í dag. Hann hafi selt hlutinn til eiginkonu sinnar\". Já. Þetta las ég tvisvar,\" segir Eiður Guðnason.
Karl Axelsson var áður en hann varð hæstaréttardómari formaður Fjölmiðlanefndar. Hann hefur nú látið af því starfi vegna nýju stöðunnar. Karl var einnig verjandi Baldurs Guðlaugssonar sem dæmdur var fyrir stórfelld innherjasvik þegar Baldur gegndi opinberri topptrúnaðarstöðu í ráðuneyti. Karl réði Baldur til starfa á eigin lögmannsstofu um leið og Baldur hóf samfélagsþjónustu á refsitímanum.