Helgi pé skoðar akureysku leiðina

Sá ástsæli tónlistar-og sjónvarpsmaður, Helgi Pétursson heldur í kvöld áfram hringferð sinni um landið þeirra erinda að skoða aðbúnað eldra fólks á Íslandi, en sjállfur verður kappinn 67 ára á næsta ári.

Í þætti kvöldsins, sem hefst klukkan 20:00 er spurt, Akureyska leiðin - hvað er nú það? Og stutta svarið er einfaldlega á þessa leið; vel heppnuð þjónusta á forsendum  manneskjunnar, fremur en kerfisins.

Helgi Pétursson heldur sumsé áfram að kynna sér öldrunarþjónustu og fjallar að þessu sinni um samþættingu þjónustu og skipulag hennar á Akureyri sem nefnd hefur verið Akureyrska leiðin. Helgi heimsækir Hlíð, eitt hjúkrunar- og dvalarheimila á Akueyri og ræðir við stjórnendur þar og í bæjarfélaginu um stöðu mála og sérstaklega um þær miklu breytingar sem framundan eru í málaflokknum.

Okkar fólk á dagskrá kl. 20:00 í kvöld og endursýnt kl. 22:00