Helgi pé horfir til efri áranna

Einn kunnasti sjónvarps- og tónlistarmaður landsins, Helgi Pétursson er genginn til liðs við Hringbraut og byrjaði með nýja og metnaðarfulla dagskrárröð í gærkvöld klukkan 20:00 um lífið á ljúfasta aldrinum.

Helgi verður sjálfur 67 ára á næsta ári - og mun velta því fyrir sér í þáttunum, sem eru átta að tölu, hvort gamla fólkið sé lengur gamalt. Hans kynslóð horfir ef til vill með öðrum augum fram á efri árin en margar fyrri kynslóðir - og það er einmitt umræðuefni fyrsta þáttarins í kvöld.

Í næstu þáttum í haust verður farinn hringur um landið til að skoða hvernig búið er að okkar besta fólki um allt land, meða, annars á Vestfjörðum, Norðurlandi á Austurlandi og Suðvesturlandi, en eins og verður málaflokkurinn skoðaður í þaula með sérfræðingum.

Okkar fólk er frumsýnt klukkan 20:00 á þriðjudagskvöldum, endursýnt í allan dag og er alltaf sjáanlegt á vef Hringbrautar.