Helgi ósáttur með heimsókn Katrínar til lögreglustjórans

Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra greindi frá för sinni um Akur­eyri á Face­book í dag. Þar sagði hún meðal annars frá heim­sókn sín til lög­reglunnar á Norður­landi Eystra. Þá birti Katrín mynd úr heim­sókninni, en þar mátti sjá hana á­samt full­trúum lög­reglunnar, Páleyju Borg­þórs­dóttur.

Katrín sagðist hafa verið að kynna sér um­fangs­mikil verk­efni lög­reglunnar.

Lög­reglan á Norður­landi eystra, hefur verið á­berandi í um­ræðunni á þessu ári, eftir að hún boðaði blaða­menn í skýrslu­töku vegna máls sem tengist um­fjöllun þeirra um svo­kallaða „Skæru­liða­deild Sam­herja“.

Helga Seljan, blaða­manni, virðist finnast heim­sókn Katrínar sér­stök. Hann tísti um málið í kvöld, en lesa má á­kveðinn kald­hæðnis­tón í færslu hans.

„For­sætis­ráð­herra gaf sér tíma til að fara að­eins úr Borgar­túninu og norður á land til að kynna sé „um­fangs­mikil verk­efni” fyrr­verandi stjórnar­manns Vinnslu­stöðvarinnar, lög­reglu­stjórans.“ skrifaði Helgi.