Helgi Steinarsson og Brynjar Guðmundsson eiga yfir höfði sér langa fangelsisdóma í Ástralíu eftir að hafa verið gripnir með á fjórða kíló kókaíns í Melbourne. Helgi, 30 ára, og Brynjar, 26 ára, voru handteknir í nóvember á síðasta ári. Við réttarhöld í dag játuðu þeir báðir sök.
Fréttablaðið greinir frá og vísar til umfjöllunar ástralska miðilsins Blue Mountains Gazette.
Í byrjun nóvember var Brynjar handtekinn á flugvellinum í Melbourne eftir að tollverðir fundu 2,1 kíló af kókaíni í skjalatösku hans. Söluvirði 2,1 kílós af kókaíni er tæplega 145 milljónir íslenskra króna.
Rannsókn lögreglunnar í Melbourne leiddi í ljós að ferðabókanir Brynjars voru nánast alveg eins og bókanir Helga, sem hafði komið til borgarinnar nokkrum dögum fyrr. Lögregla handtók Helga svo á hóteli í Melbourne, þar sem eitt og hálft kíló af hreinu kókaíni fannst á hótelherbergi hans. Söluvirði eins og hálfs kílós af hreinu kókaíni er um 103 milljónir króna.
Fjölskyldur bæði Helga og Brynjars voru viðstaddar réttarhöld yfir þeim í dag, þar sem þeir játuðu báðir sök. Ekki er búið að kveða upp dóm ennþá en báðir eiga þeir yfir höfði sér langa fangelsisdóma. Helgi gæti átt yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisdóm en Brynjar gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsisdóm.
Gerðust burðardýr til að greiða fíkniefnaskuld
Verjendur Helga og Brynjars segja báðir að þeir hafi tekið að sér að gerast burðardýr til þess að greiða fíkniefnaskuld. Skuld Helga hljóðaði upp á um 850.000 krónur, sem hafi aðallega verið til komin vegna fíkniefnanotkun kærustu hans. Skuld Brynjars var helmingi hærri, eða 1,7 milljón króna.
John Carmody héraðsdómari sagði í samtali við ástralska fjölmiðla að það sé að verða algengara að ungt menntafólk af góðum heimilum sé notað til að smygla fíkniefnum. Hann sagði Helga og Brynjar vera peð í miklu stærra batteríi alþjóðlegra glæpasamtaka.