Brynjar og helgi báðir dæmdir í fangelsi í ástralíu

Brynjar Guðmundsson og Helgi Heiðar Steinarsson hafa báðir verið dæmdir í fangelsi í Ástralíu fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Þeir voru handteknir í borginni Melbourne með samtals rúmlega þrjú og hálft kíló af kókaíni. Vísir greinir frá.

Brynjar fékk átta ára og þriggja mánaða dóm fyrir aðild sína að smyglinu og Helgi fékk sex ára og þriggja mánaða dóm. Þeir hafa báðir nú þegar setið í 207 daga í varðhaldi eftir að hafa verið handteknir í byrjun nóvember.

Brynjar getur sótt um reynslulausn að fimm árum liðnum en Brynjar getur gert það að fjórum árum liðnum. Segja má að betur hafi farið en á horfðist fyrir þá báða þar sem Brynjar átti yfir höfði sér lífstíðarfangelsisdóm og Helgi átti yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisdóm.

Í byrjun nóvember var Brynjar, sem er 26 ára, handtekinn á flugvellinum í Melbourne eftir að tollverðir fundu 2,1 kíló af kókaíni í skjalatösku hans. Söluvirði 2,1 kílós af kókaíni er tæplega 145 milljónir íslenskra króna.

Rannsókn lögreglunnar í Melbourne leiddi í ljós að ferðabókanir Brynjars, sem er 30 ára, voru nánast alveg eins og bókanir Helga, sem hafði komið til borgarinnar nokkrum dögum fyrr. Lögregla handtók Helga svo á hóteli í Melbourne, þar sem eitt og hálft kíló af hreinu kókaíni fannst á hótelherbergi hans. Söluvirði eins og hálfs kílós af hreinu kókaíni er um 103 milljónir króna.

Vægari dómur vegna geðrænna vandamála

Brynjar og Helgi þekktust ekki fyrir en tóku báðir að sér að gerast burðardýr fyrir sömu glæpasamtökin til þess að greiða upp fíkniefnaskuldir. Skuld Brynjars var 1,7 milljón króna og skuld Helga var helmingi lægri, um 850.000 krónur.

Við dómsuppkvaðningu tók dómari tillit til geðrænna vandamála mannanna, samvinnuvilja þeirra og fjarlægð frá fjölskyldu. Taldi hann því eðlilegt að veita þeim vægari dóm. Brynjar er greindur með geðhvarfasýki og Helgi með þunglyndi. Báðir játuðu sök við réttarhöld í Melbourne á miðvikudaginn.

Dómarinn hvatti Brynjar og Helga til betrunar og sagði að þeir yrðu sendir úr landi um leið og þeir losni úr fangelsi. „Þið eruð ungir menn núna. Þið verðið ekki svona ungir þegar þið hafið afplánað ykkar dóm,“ sagði dómarinn.