Grein Gísla Páls Pálssonar, forstjóra Grundar, um uppeldi barna nú á dögum hefur vakið mikla athygli. Gísli er margra barna faðir sem finnst að foreldrar nú til dags ali börnin sín upp á þann hátt að þau lendi aldrei í mótbyr. Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata er á öndverðum meiði og segir að unga kynslóðin í dag sé sú frábærasta hingað.
Í grein sinni sagði Gísli: „Passa upp á að ekkert alvarlegt komi fyrir þau og ef það skyldi gerast þá leysa foreldrarnir úr málum barnanna, ekki börnin sjálf [...] Við sem erum foreldrar höfum eflaust rutt smá snjó úr vegi barna okkar og svo sem í lagi á meðan þau hafa ekki þroska, vit og getu til að takast á við hluti sem koma upp á í lífinu. En hættum að búa til aumingja, leyfum börnunum að takast á við lífið, verða fullorðnir og ábyrgir einstaklingar. Annars verður enginn með viti til að taka við af okkur þegar við setjumst í helgan stein.“
Helgi kemur bæði foreldrum og börnum til varnar í pistli á Facebook. Þar segir Helgi: „Hver einasta eldri kynslóð telur ungu kynslóðina vera lata og duglausa aumingja og hver einasta kynslóð hefur rangt fyrir sér. Við erum ekki að búa til neina aumingja og nútíma uppeldisaðferðir eru á allan hátt betri en þær sem viðgengust áður fyrr, enda oftar byggðar á vísindalegri aðferð frekar en sjálfsdýrkun og hörkutólaþvaðri.
Þá bendir Helgi á að ein kynslóðin hafi á sínum tíma þótt lestur bóka og menntun vera leti og snobb og á sama tíma þótt yngri kynslóðin glötuð líka. Þá hafi sú kynslóð sem ekki fékk sjónvarp inn á heimilið fyrr en um sextugt, fundist unga kynslóðin vart ekki gera annað en að glápa á sjónvarp.
„Það var rangt þá, og er rangt núna,“ segir Helgi og bætir við: „Almennt er ekki góð hugmynd að stilla sinni eigin kynslóð upp gegn þeirri sem kemur á eftir. Sú sem kemur á eftir þarf iðulega að laga einhver fullkomlega skelfileg vandamál sem sú eldri skilur eftir sig, oftast vegna samblöndu af fáfræði og frumstæðari siðferðisvitundar. Hvort tveggja almenn þekking um lífið og tilveruna, sem og beisik siðferðisvitund (eins og að berja ekki börnin sín og keðjureykja ekki ofan í þau, í langferð á litlum bíl með lokaða glugga), eru ólýsanlega mikið betri núna en þau hafa nokkurn tíma verið fyrr.“
Þá telur Helgi að fátt hafi tekið jafn miklum framförum síðustu áratugina og uppeldisaðferðir. Áður hafi uppeldisaðferðir verið samansafn af handahófskenndum getgátum, byggðar á hefðum frekar en rökréttri hugsun. Helgi bætir við:
„Unga kynslóðin í dag er sú frábærasta sem hingað til hefur lifað og allar líkur eru á því að sú sem komi á eftir verði enn þá frábærari. Báðar munu þurfa að þola, og laga, vandamál sem eldri kynslóðin skildi eftir sig, sér í lagi loftslagsbreytingar; vandamál sem er búið að benda á áratugum saman en sinnuleysi og, einmitt, vitsmunaleg leti eldri kynslóðarinnar hefur fyrirbyggt að verði stöðvað í tæka tíð.“
Þá segir Helgi í lokin: „Vinsamlegast minnið mig á þetta ef ég byrja að röfla yfir ungu kynslóðinni eftir 10-20 ár.“