Helgi Jóhannesson lögmaður hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsvirkjunar. Helgi hefur verið einn af eigendum LEX lögmannsstofu um árabil. Hann var stjórnarmaður í Landsvirkjun á árunum 2014-2017. Auk kandídatsprófs í lögum frá Háskóla Íslands og réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi og Hæstarétti er Helgi með LL.M gráðu frá lagadeild Háskólans í Miami.
Helgi hefur verið stjórnarmaður og formaður Lögfræðingafélags Íslands og Lögmannafélags Íslands, auk þess að hafa verið stundakennari í viðskiptalögfræði við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Helgi situr einnig í stjórn Ferðafélags Íslands. Sambýliskona Helga er Þórný Jónsdóttir markaðsfræðingur.