Lífeyrissjóðirnir eru skammaðir fyrir botnlaust sukk með fjárfestingum í hinum og þessum fyrirtækjum – að þeim sér stjórnað af fullkomlega ófærum fulltrúum sem aldrei hafi verið kosnir og þiggi ofurlaun fyrir og hafi ekkert vit á því sem þeir eru að gera.
Þessar fullyrðingar verða teknar fyrir í þættinum Okkar fólk á Hringbraut í kvöld, en þar hittir Helgi í Góu einn af forkólfum Lífeyrissjóðanna - og var kannski tími til kominn, enda Lífeyrissjóðirnir oft og tíðum sagðir vera hafnir yfir fólk eins og gagnrýnendur þeirra hafa haft á orði; þeir séu séu beinlínis að sukka og okri á almenningi með því að eiga í alls kyns lykilfyrirtækjum sem haldi uppi verðlagi á landinu, olíufélögum, flugfélögum, bönkum, matvöruverslunum og hverju því sem hægt er að græða á á kostnað almennings, eigenda sjóðanna. Og sjóðirnir telja orðið þrjúþúsund og tvö hundruð milljarða króna.
Sjálfir fái sjóðsfélagar svo eftirlaun sem þeir geti hvorki lifað né dáið af. Eða eru þeir kjölfestan í íslensku efnahagslífi og velferðarkerfi þjóðarinnar?
Gestir Helga Péturssonar í þættinum Okkar fólk með Helga Péturssyni í kvöld eru sumsé eru þau Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða og Helgi Vilhjálmsson, kenndur við Góu - og það má búast við umræðu á vel vopnaðri íslensku.
Okkar fólk er á dagskrá klukkan 20:30 í kvöld.