Helgi hrafn vill aftur á þing

„Að óbreyttu þá hyggst ég bjóða mig fram næst, en ég ætla ekki að lofa því,“ segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, um stjórn­mála­þátt­töku sína. Helgi segir að kannski verði annað fólk í fram­boði sem hann muni frekar vilja styðja, það sé fullt af frá­bæru fólki innan Pírata. Hann segir þetta koma í ljós þegar nær dreg­ur. 

Helgi Hrafn er gest­ur sjón­varps­þátt­ar­ins Kjarn­ans á Hring­braut í kvöld. Við­fangs­efni þátt­ar­ins Helgi Hrafn, sem er í stjórn Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar og Þór­unnar Elísa­betar Boga­dótt­ur, eru breyt­ingar á íslenskum stjórn­málum eftir hrun. Það er ekki ofsögum sagt að þær breyt­ingar séu gríð­ar­leg­ar, og meðal þess sem hefur breyst er flokka­kerf­ið. Í síð­ustu kosn­ingum fengu flokkar sem voru stofn­aðir eftir árið 2012 tæp­lega 40 pró­sent atkvæða. Þetta og margt annað er rætt í þætt­inum í kvöld.