Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata leggur til í nýjum pistli sínum á Hringbraut að nú þegar búið er að afnema bann við guðlasti í íslenskum lögum sé lag að leyfa klám; það sé til marks um forpokahátt og hellabúskap landsmanna að bann ennþá klám í opinberri umræðu.
Hann telur að eitt leiði af öðru í þróun samfélagsins til aukins frjálsræðis - og nú standi klámbannið eftir sem skýrasta dæmi um afturhald þess, en andstætt því sem stuðningsmenn bannsins haldi fram sé klámbann nær einsdæmi í frjálskyndum lýðræðisríkjum, sér í lagi þar sem jafnrétti kynjanna sé tekið alvarlega.
Helgi Hrafn telur klámbannið vera jafn úrelt og bannið við guðlasti - og ekki gangi að halda þar upp sömu sjónarmiðum og gegn guðlasti; að það sé ósmekklegt og jafnvel ógeðslegt. Mörk tjáningarfrelsis geti ekki legið þar: \"Það skiptir máli, hvort sem um er að ræða bann við klámi eða rapptónlist, ofbeldiskvikmyndum eða guðlasti, að takmarkanir á tjáningarfrelsi séu skýrar, málefnalegar og nauðsynlegar. Klámbannið er hinsvegar ekkert af ofangreindu. Sú staðreynd ein og sér gerir umræðu um klámbannið mikilvæga,\" skrifar helgi Hrafn í pistli sínum.
Hann bendir á eftirfarandi: \"Það skiptir máli að þegar kemur að takmörkunum á tjáningarfrelsi, þá liggi sönnunarbyrðin hjá þeim sem vill banna en ekki hinum. Sú staðreynd ein og sér gerir umræðu um klámbannið mikilvæga.\"
Og hann bætir við: \"Það skiptir líka máli að dómari geti í það minnsta skilgreint brotið án þess vandræðalega flumbrugangs sem einkennir dómsmál um klám. Sú staðreynd ein og sér gerir umræðu um klámbannið mikilvæga.\"
Og loks þetta: \"Síðast en ekki síst skipta hótanir um refsingar máli. Það er ekki á nokkurn hátt í lagi, eða ásættanlegt í samfélagi sem þykist á nokkurn hátt vera frjálst, að almenn hegningarlög hóti fólki fangelsisrefsingum fyrir eitthvað sem fólk á í mestu vandræðum með að skilgreina og skiptir í þokkabót ekki máli. Sú staðreynd ein og sér gerir umræðu um klámbannið mikilvæga,\" skrifar helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is.