„Við verðum að vera viðbúin þegar næsta áfall kemur, næsta kreppa, næsta hrun. Það kemur annað hrun,“ sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, kapteinn Pírata í umræðu um fjárlögin á Alþingi í gær. Hann telur að við fjárlagagerðina þurfi að auka áherslu á að safna fé í almannasjóði og búa í haginn fyrir næstu áföll. Einmitt vegna þess hagvaxtar og uppgangs sem sé í íslensku efnahagslífi í dag.
Helgi gat þess að ef hann myndi spá því úr ræðustóli Alþingis að það ættu eftir að koma fleiri jarðskjálftar á Íslandi tæki enginn fréttamaður það upp. Vísast yrði það aftur á móti frétt að hann myndi lofa öðru efnahagshruni, en líkurnar á slíku hruni væru þó ekki minni en á jarðskjálftum. Ekki endilega vegna ónýtrar innlendrar hagstjórnar heldur vegna þess að Ísland velktist um í ölduróti alþjóðlegra peninga- og viðskiptastrauma og hefði fremur lítið um kreppur framtíðarinnar að segja. Því fælisi skynsemi í því að fjárlagagerðin fyrir árið 2016 tæki mið af því sem þingmaðurinn kallaði viðbragðsáætlun fyrir næsta óhjákvæmilega áfall.
Helgi bætti við í þingræðu sinni að hann yrði efalítið sakaður um bölsýni vegna ummælanna. Á Alþingi fyrir hrun hefðu gagnrýnendur og aðrir sem sáu viðvörunarljósin kvikna verið sakaðir um að tala íslenskan efnahag niður. Það væri óábyrgasta orðræða sem þingmaðurinn hefði orðið vitni að.