Helgi Hrafn segir ekki nóg að Ingó muni tapa: „Tilhæfulaust frá upphafi“

„Ef við förum í einfalt hagsmunamat, þá er æra fólks einfaldlega ekki meiri hagsmunir heldur en að fólk geti tjáð sig,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, í færslu á Facebook. Vísar hann þar til kæra Ingólfs Þórarinssonar, Ingó Veðurguðs, á hendur fólki sem hefur sett fram meintar fullyrðingar um meint kynferðisbrot.

Hann segir að staða tjáningarfrelsis sé til skammar á Íslandi. „Íslendingar geta ekki einu sinni sungið sinn eigin þjóðsöng eins og þeim sýnist án þess að það séu til lög gegn því,“ segir hann. „Það kemur því vonandi engum á óvart að fólk geti ekki sagt frá upplifun sinni af ofbeldi eða skítlegri framkomu án þess að vera kært fyrir það. Þannig virkar þetta hérna.“

Helgi Hrafn segir það ekki koma á óvart að frásagnirnar séu nafnlausar.

„Nú hefur Ingó veðurguð sannað það langbest sjálfur hvers vegna (meintum) þolendum eða fólk sem hefur þörf fyrir að tjá eitthvað sem það varð fyrir eða varð vitni að, er hollast að grjóthalda kjafti, eða í það minnsta fela nafn sitt,“ segir Helgi.

„Það er ekki nóg að Ingó veðurguð tapi fyrir dómstólum. Það þarf að breyta lögunum þannig að nákvæmlega svona mál sé bersýnilega tilhæfulaust frá upphafi. Ef það þýðir að fólk þurfi að umbera meira af ásökunum af og til, og já, jafnvel tilefnislausum, þá verður bara að hafa það!

Tjáningarfrelsið er einfaldlega mikilvægara en að fólk geti sannað hvern einasta hlut sem það segir frá í upplifun sinni. Fólk sem þarf að segja frá ofbeldi sem það verður fyrir einfaldlega verður að geta tjáð sig um það án ótta við að vera kært fyrir það eitt og sér.“

Miklar umræður hafa svo skapast.

Jakob Bjarnar Grétarsson, stjörnublaðamaður Vísis spyr:

„Ertu sem sagt að meina að það sé og eigi að vera í góðu lagi að fara fram með (tilhæfulausar) ásakanir um refsiverða háttsemi á hendur fólki? Er ég að skilja þig rétt?“

Helgi svaraði að bragði: „Að mínu mati mættu lögin vera þannig að ef það er hægt að sýna fram á að þær séu tilhæfulausar eða bornar fram í vondri trú, þá getur það verið refsivert. En það er ekki þannig, heldur þarf sá sem tjáir í reynd að sanna sakleysi sitt.“