Helgi hrafn neytti fíkniefna en hættur

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, er í forsíðuviðtali við Fréttablaðið í dag. Hann hefur barist fyrir breyttri umræðu og breytingum á lagaramma um fíkniefni þar sem nálgast beri þann heim út frá heilbrigðissjónarmiði en ekki sem lögreglu- eða refsimál.

Hann játar því í viðtalinu að hafa neytt ólöglegra fíkiniefna, þ.e. kannabisefna, játar því að það hafi verið vesen en segist hættur neyslu kannabisefna í dag.

Þá segir Helgi að áfengi sé ekki síður skaðlegt en ólögleg fíkniefni, áfengi valdi fíkn, ofbeldi, geðveiki, heimsku og dauða ef neyslan þróist út í fíkn.

Lesa má viðtal Fréttablaðsins í heild hér á visir.is